/þjálfun
Hlaupaþjálfunhjá íslandsmeistara
/hlaupaþjálfari
Hlynur
Andrésson
Hlynur Andrésson er afrekshlaupari og brautryðjandi í íslenskum langhlaupum. Margfaldur Íslandsmeistari, íslandsmethafi í maraþoni og hálfmaraþoni.

/um þjálfara
Hlynur Andrésson
Hlynur Andrésson er afrekshlaupari og brautryðjandi í íslenskum langhlaupum sem hefur yfir ferilinn sett samtals yfir 40 íslandsmet í greinum allt frá 3000m til maraþons.
Hann er núverandi íslandsmethafi í maraþoni og hálfmaraþoni með tímana 2:13:37 og 1:02:47. Hlynur hefur keppt víða um heiminn á stórmótum eins og EM í frjálsum, EM í víðavangshlaupum og HM í hálfmaraþoni.
Hann keppti á árunum 2014–2018 í Bandaríska háskólakerfinu á efsta stigi (NCAA Division I) og hefur æft yfir ferilinn undir leiðsögn þjálfara frá Bandaríkjunum, Hollandi og Ítalíu. Hlynur hefur þjálfað yfir 60 hlaupara á öllum stigum frá árinu 2022 og hefur klárað fyrsta stigs þjálfaramenntun frá ÍSÍ.

Persónuleg met
/bestu tímar
800m
1:55,32
1500m
3:45,97
Míla
4:03,61
3000m
7:54,72
5000m
13:41,01
10.000m
28:36,81
3000m hind.
8:44,11
10km
28:57
Hálfmaraþon
1:02:47
Maraþon
2:13:37
Puffin Run
1:14:56 (brautarmet)
/æfingakerfi
5 hjartsláttarsvæði
Æfingakerfið er byggt á 5 hjartsláttarsvæðum sem eru notuð með mismunandi áherslum yfir tímabilið — grunnbygging, keppnisundirbúningur og hápunkt.
Zone 1 — Rólegt
Auðvelt að halda þessari ákefð. Hægt að hlaupa samtali léttilega. Grunntímar og endurheimtarhlaup.
ca. 130–145 bpm (HR max 200)
Zone 2 — Stöðugt
Þarft aðeins að einbeita þér en ert enn að hlaupa á þægilegri ákefð. Hægt að halda henni í langan tíma.
ca. 145–160 bpm (HR max 200)
Zone 3 — Tempó / LT1
Hérna finnur þú fyrir ákefðinni en hún er þægilega erfið. Hægt að halda henni í u.þ.b. tvo tíma.
ca. 160–170 bpm (HR max 200)
Zone 4 — Mjólkursýruþröskuldur / LT2
Það er vont að hlaupa hér. Þú ert nálægt hámarksákefð en getur haldið henni í næstum klukkutíma.
ca. 170–180 bpm (HR max 200)
Zone 5 — Loftfirrt / VO2max
Mjög óþæginleg ákefð. Hægt að halda henni í 7–8 mínútur að hámarki. Mjög góðir hlauparar hlaupa 3000m á þessari ákefð.
yfir 180 bpm (HR max 200)

Árangur liðsins
/teymismet
Maraþon karla
2:32:24
Daníel Ágústsson
NYC maraþonið 2025
NYC maraþonið 2025
Maraþon kvenna
3:11:24
Jóna Dóra Óskarsdóttir
Kaupmannahafnarmaraþonið 2025
Kaupmannahafnarmaraþonið 2025
Hálfmaraþon karla
1:10:51
Daníel Ágústsson
Bashir's Run 2026
Bashir's Run 2026
Hálfmaraþon kvenna
1:27:54
Jóna Dóra Óskarsdóttir
Mezzamaratona di Garda 2025
Mezzamaratona di Garda 2025
10km karla
32:58
Þórólfur Ingi Þórisson
Hleðsluhlaupið 2024
Hleðsluhlaupið 2024
10km kvenna
40:33
Jóna Dóra Óskarsdóttir
Adidas Boost hlaupið 2025
Adidas Boost hlaupið 2025
5km karla
15:51
Daníel Ágústson
Hafnarfjarðarhlaupið 2026
Hafnarfjarðarhlaupið 2026
5km kvenna
19:53
Eyrún Eva Eyþórsdóttir
Víðavangshlaup ÍR 2026
Víðavangshlaup ÍR 2026
Umsagnir
/umsagnir
“Ef þú ert með markmið þá er Hlynur þjálfarinn sem mun hjálpa þér að ná þeim. Þetta er fjórða árið mitt hjá honum og eftir hvert tímabil hef ég náð þeim markmiðum sem ég hef stefnt að. Hann er snillingur í að byggja prógramm þannig að þú sért að toppa þig á hárréttum tíma.”
Daníel Ágústsson
“Hlynur er frábær þjálfari sem hefur hjálpað mér að stórbæta mig í öllum vegalengdum. Hann er metnaðarfullur og hvetjandi, hefur trú á manni en er ekki með innantómt pepp. Hann er rödd skynseminnar þegar maður er að fara fram úr sér og einblínir alltaf á grundvallaratriðin sem skipta mestu máli. Hann hjálpaði mér að byggja mig upp eftir meiðsli og sýnir því skilning þegar ég þarf að aðlaga planið. Æfingakerfið er skýrt, einfalt og skemmtilegt að fylgja og mjög áhrifaríkt. Ég er alltaf spenntur að fá planið fyrir vikuna. Mæli 100% með Hlyni sem þjálfara.”
Daði Freyr Guðjónsson
Tilbúin(n) að hefja þjálfun?
Sæktu um þjálfun og við förum yfir markmiðin þín.