Fyrsta keppni sem pabbi í Appingedam!
Stadsloop Appingedam
Þann 15. September varð ég pabbi í fyrsta sinn þegar unnusta mín Valentína og ég eignuðumst stelpu, hana Hugrúnu, síðan þá hafa æfingar snúist meira um að gera það sem ég get á frá degi til dags heldur en að ná inn fullkomnum æfingavikum. Lánið hefur í rauninni leikið við mann þar sem að hún sefur vel á næturnar og amma hennar frá Argentínu hefur verið hjá okkur að hjálpa til. Ég hef aðallega verið að einbeita mér æfingalega séð að úthaldsæfingum einu sinni á dag ásamt fáeinum gæðaæfingum á brautinni sem hafa verið á LT2 ákefð (zone 4 eða mjólkursýruþröskuldi), en markmiðið á þessum tímapunkti er að halda í stöðugleikann eins vel og ég get en passa að gera ekki of mikið á meðan svefninn er ekki upp á hundrað. Það sem mér vantar núna æfingalega séð er að auka æfingamagnið aðeins og ná inn nokkrum æfingum á hraðari ákefð en mjólkursýruþröskuldi, þar sem það er erfitt að aðlaga líkamann að því að hlaupa með mjólkursýru í vöðvunum ef þú tekur engar æfingar á þeirri ákefð. Ég hóf keppnistímabilið í dag með Stadsloop Appingedam, eða ‘Borgarhlaup Appingedam’, sem er 10km götuhlaup í nyrsta héraði Hollands, Groningen. Þetta hefur alltaf verið vinsælt hlaup í Hollandi í gegnum tíðina með gott verðlaunafé í boði, en Wilson Kipsang og Geoffrey Mutai (fyrrum heimsmethafar í maraþonhlaupi) eiga hröðustu tímanna í brautinni frá upphafi. Þetta hefur samt aldrei verið talin sérstaklega hröð braut þar sem að enginn Hollendingur hlaupið undir 29:20 síðan hlaupið hefur verið haldið. Ég var því á báðum áttum við því hvort að ég ætti að taka þátt þar sem ég vissi að ég myndi að öllum líkindum ekki hlaupa sérstaklega góðann tíma, en þar sem mótshaldarar buðu mér gott fé til þess að mæta og það er verðlaunafé í boði fyrir fyrstu 6 sætin, því leit ég á þessi keppni sem gott stöðutékk ásamt smá útborgun í þokkabót. Það er frekar algengt að hlauparar keppi stundum í uppbyggingartímabili í slíkum hlaupum þar sem grunnformið þeirra er nógu gott til þess að sækja verðlaunarfé án þess að vera að keppa endilega um topp sætin. Þegar peningaverðlaun eru í boði í götuhlaupum í Evrópu, gerist það næstum alltaf að það eru nokkrir frá Austur-Afríku (aðallega Keníu) mættir til þess að sækja verðlaunaféið og það gerir hlutina stundum erfiða fyrir okkur sem mæta í þessi hlaup til þess að gera hið sama, einfaldlega af því það er svo mikið af þeim og þeir mæta alltaf í svo góðu formi að það er nánast ómögulegt að taka fyrsta sætið. Ég horfi stundum öfundaraugum á þá íslendinga sem mæta í keppnir í utanvegahlaupum hérna í Evrópu og geta sigrað stórar keppnir, en elítan frá Keníu, Úganda, Eþíópíu og Eritreu er greinilega ekki enn kominn í þær keppnir, allavega ekki enn. Þetta hefur verið stór ‘business’ lengi í götuhlaupum yfir Evrópu þar sem umboðsmenn fá til sín marga góða hlaupara frá Austur-Afríku, láta þau hlaupa í öllum götuhlaupum sem bjóða upp á verðlaunafé og taka svo sínar prósentur af fénu. Það sökkar kannski fyrir okkur hina en ekkert ólöglegt í gangi þannig ekkert sem maður getur í því gert nema bara að reyna að verða betri. Hlaupið í Appingedam gekk vel yfir heildina, ég hefði ekki getað klárað ofar en 6. sæti í hlaupinu miðað við samkeppni og formið sem ég er í á þessum tímapunkti og var ánægður með hversu sterkur ég var að rúlla hvern kílómeter á þremur mínútum sléttum þrátt fyrir hlykkjóttan kúrs með undirlag af kobbelsteinum. Ég fór af stað fyrsta kílómeterinn með fremstu mönnum sem einkendist aðallega af hlaupurum frá Austur-Afríku og sá strax að hann var of hraður, en við hlupum hann á tveimur mínútum og 48 sekúndum. Ég fór því að halda mínu eigin tempói, sem gerði þetta að einmanalegu hlaupi þar sem ég var einn allann tímann á milli tveggja hópa. Ég tók fram úr einum hlaupara á fjórða kílómetranum og hélt mínu striki fram að endalínu. Það erfiða við að keppa í keppnishlaupi þar sem elítuhópurinn er frekar lítill er að stundum er einn hópur of hraður og sá næsti of hægur, þannig maður lendir þarna í einskismannslandi eða ‘no-mans-land’ eins og það er kallað á ensku. Það var góð tilfinning hinsvegar að hafa náð að dreifa orkunni rétt yfir hlaupið og klárað sem fyrsti Hollandsbúinn, þar sem að góðir hlauparar, eins og t.d. Frank Futselaar, sem hljóp 28:14 fyrir vegalengdina í Valencia í Janúar, voru mættir til leiks í Appingedam, en Frank endaði í 7. sæti, sirka 20 sek á eftir mér. Í heildina litið var þetta góð fyrsta keppni tímabilsins þrátt fyrir að tíminn hafi ekki verið neitt til að hrópa húrra fyrir, ásamt góðu stöðutékki til að vita hvað ég þarf að vinna í fyrir mikilvægustu keppnir Vetursins sem hefjast eftir fimm vikur. Sennilega var sætast að geta mætt í sterka keppni tveimur og hálfri viku eftir barneign og geta skilað góðri frammistöðu. Næsta hlaup er svo eftir fimm vikur og er 15km hlaup í Nijmegen, Hollandi. Ég hljóp þar 45:31 í fyrra en held að ég get hlaupið sirka mínútu hraðar í ár, sem væri góð merki um að maður er kominn töluvert lengra á einu ári. Næsta maraþon mun svo líklegast vera í Febrúar á næsta ári og get ég ekki beðið eftir næsta tækifæri til að tækla vegalengdina.
Hlynur Andrésson
Hlaupaþjálfari